Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 24. mars 2024 14:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Walker: Kem vonandi eins fljótt og hægt er aftur
Mynd: EPA

Kyle Walker bakvörður Manchester City og enska landsliðsins meiddist í leik enska liðsins gegn Brasilíu í gær en vonast að meiðslin séu ekki alvarleg.


Hann þurfti að fara af velli eftir tuttugu mínútna leik. Gareth Southgate þjálfari landsliðsins sagði strax eftir leik að óvíst væri af hvaða toga meiðslin væru.

Walker tjáði sig sjálfur á Instagram í dag.

„Pirrandi að fara meiddur af velli í leiknum í gærkvöldi, sérstaklega þegar maður er fyrirliði. Það er sannarlega mikill heiður. Vonandi er þetta ekki of alvarlegt og ég geti komið aftur eins fljótt og hægt er," skrifaði Walker.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner