Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 25. maí 2021 16:05
Elvar Geir Magnússon
Nær útilokað að Maguire verði með á morgun
Harry Maguire, fyrirliði Manchester United.
Harry Maguire, fyrirliði Manchester United.
Mynd: Getty Images
Manchester United er í þessum skrifuðu orðum að æfa í Gdansk í Póllandi en þar mætir liðið Villarreal í úrslitaleik Evrópudeildarinnar annað kvöld.

Nær útilokað er að fyrirliðinn Harry Maguire verði með í úrslitaleiknum en hann er ekki með liðsfélögum sínum á æfingunni.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, sagði á fréttamannafundi í dag að Maguire myndi skokka á æfingunni en varla gera meira en það.

Simon Stone, fréttamaður BBC, fylgdist með upphafi æfingarinnar og sagðist ekki sjá nein merki þess að Maguire myndi taka þátt í æfingunni að einhverju leyti.

Maguire er í 33 manna hópi sem Gareth Soutgate landsliðsþjálfari Englands tilkynnti í dag en óvíst er hvort hann geti verið í 26 manna lokahópnum.
Athugasemdir
banner
banner