Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 25. desember 2020 18:34
Victor Pálsson
Rooney vildi ekki tjá sig um Jones
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney, stjóri Derby County, hefur neitað að tjá sig um hvort félagið sé að reyna við Phil Jones, varnarmann Manchester United.

Jones fær ekkert að spila á Old Trafford þessa dagana og mun reyna að komast annað þegar janúarglugginn opnar.

Rooney er sjálfur fyrrum leikmaður Man Utd en hann er í dag tímabundinn stjóri Derby eftir brottrekstur Philip Cocu.

Derby er eitt af þeim liðum sem hefur verið orðað við Jones sem er 28 ára gamall.

„Phil Jones er leikmaður Manchester United og það er ekki mitt starf að tjá mig um hann," sagði Rooney.

Eric Bailly, Harry Maguire, Victor Lindelof og Alex Tuanzebe eru allir á undan Jones í goggunnarröðinni í Manchester.
Athugasemdir
banner
banner