Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   mið 26. maí 2021 22:13
Fótbolti.net
Kristján Guðmunds: Jákvætt að það klikkaði allt
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er skellur. Við eigum fínan leik fyrstu tuttugu mínúturnar og erum alveg með þetta. Við fengum hálffæri og skot á markið sem fór beint á markvörðinn eins og flest færin okkar í leiknum," sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar eftir 1 - 5 tap gegn Þrótti í Pepsi Max-deild kvenna í kvöld.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  5 Þróttur R.

„Eftir fyrsta markið raknar leikurinn okkar upp. Við eigum ekki séns það sem eftir lifir leiksins. Það klikkaði eiginlega allt, hvort sem það var sendingar, færslur, talandi eða hvað sem er. Það fór allt!"

En eru einhverjar skýringar á því afhverju það fer allt svona í skrúfuna?

„Ég er ekki með það núna en það er athyglisvert að það fór allt. Við getum tekið það sem jákvætt að það klikkaði allt sama hvað það var í þessum leik, því þá er það bara búið. Þetta er alveg stórfurðulegt."

Nánar er rætt við Kristján í spilaranum að ofan. Hann ræðir þar fjarveru Sóleyjar og Örnu Dísar sem eru meiddar en styttist í þær að hans sögn.
Athugasemdir
banner
banner
banner