Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 26. ágúst 2021 15:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mendy ákærður af lögreglunni fyrir nauðganir
Mynd: Getty Images
Manchester City sendi rétt í þessu frá sér tilkynningu þess efnis að félagið getur staðfest að Benjamin Mendy, leikmaður félagsins, hefur verið ákærður af lögreglunni.

Mendy hefur verið sendur í leyfi frá Manchester City á meðan lögreglan rannsakar málið.

City segir í tilkynningunni að það geti ekki tjáð sig frekar um málið þar sem það er í rannsókn.

Á Twitter-síðunni City Xtra sem og á öðrum Twitter-reikningum, kemur fram að Mendy sé kærður fyrir fjórar nauðganir og kynferðislegt ofbeldi gagnvart einstaklingum sem eru eldri en sextán ára.

Mendy er 27 ára franskur bakvörður sem lék gegn Tottenham í fyrsta leik tímabilsins en var ónotaður varamaður gegn Norwich í annarri umferð.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner