Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 27. mars 2024 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Albert átti tvö af fjórum flottustu mörkum umspilsins
Icelandair
Albert fór mikinn í umspilinu
Albert fór mikinn í umspilinu
Mynd: Mummi Lú
Albert Guðmundsson átti svakalega endurkomu í A-landsliðið í þessum glugga en hann skoraði fjögur mörk í tveimur leikjum og var óumdeilanlega sá mikilvægasti í verkefninu.

KR-ingurinn snéri aftur í landsliðið eftir margra mánaða fjarveru en hann mætti endurnærður og í formi.

Albert, sem er 26 ára gamall, hefur verið að spila vel með Genoa á Ítalíu og eru öll stærstu félög ítalska boltans á eftir kappanum.

Hann skoraði þrennu gegn Ísrael í undanúrslitum umspilsins, þar á meðal eitt mark úr aukaspyrnu.

Þá gerði hann eina mark Íslands í 2-1 tapinu gegn Úkraínu, en það mark og aukaspyrnan eru tvö af fjórum flottustu mörkum umspilsins að mati X-síðu Evrópumótsins.




Athugasemdir
banner
banner