Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 30. október 2019 17:45
Magnús Már Einarsson
Watford að bæta við brasilískum sóknarmanni
Mynd: Getty Images
Watford hefur staðfest að framherjinn Joao Pedro sé kominn með atvinnuleyfi á Englandi.

Watford hefur samið við brasilíska félagið Flamengo um að kaupa hinn 18 ára gamla Pedro á tvær milljónir punda.

Í samningnum er þó klásúla um að Watford þurfi að punga út tuttugu milljónum punda ef annað félag blandar sér í baráttuna um Pedro.

Watford ætti hins vegar að ganga frá samningum mjög fljótlega. Markvörðurinn reyndi Heurelho Gomes er spenntur að fá landa sinn Pedro fra Brasilíu til Watford.

„Þetta eru frábærar fréttir fyrir okkur. Hann er hæfileikaríkur leikmaður, hann er fljótur og hann getur líka skorað mörk," sagði Gomes.
Athugasemdir
banner