Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 30. desember 2020 15:30
Elvar Geir Magnússon
Balotelli opnaði markareikninginn eftir fimm mínútur
Mario Balotelli og Kevin Prince Boateng fagna marki þess fyrrnefnda.
Mario Balotelli og Kevin Prince Boateng fagna marki þess fyrrnefnda.
Mynd: Getty Images
Í þessum skrifuðu orðum stendur yfir leikur Monza og Salernitana í ítölsku B-deildinni.

Mario Balotelli er að spila sinn fyrsta leik fyrir Monza og hann opnaði markareikning sinn eftir aðeins fimm mínútna leik. Monza er 1-0 yfir eftir hálftíma leik.

Síðasti mótsleikur Balotelli var með Brescia í mars en hann rifti samningi við félagið.

Hann gekk í raðir Monza á frjálsri sölu í desember. Áður hefur þessi skrautlegi þrítugi sóknarmaður spilað fyrir Inter, Liverpool og Manchester City.

Balotelli spilar með Kevin Prince Boateng í sóknarlínu Monza en leikurinn gegn Salernitana er toppslagur í B-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner