Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 31. janúar 2020 08:54
Magnús Már Einarsson
Inter reynir aftur við Giroud
Mynd: Getty Images
Inter hefur lagt fram nýtt tilboð í Olivier Giroud framherja Chelsea eftir að félaginu mistókst að fá Fernando Llorente frá Napoli. Sky á Ítalíu segir frá.

Giroud vill fara annað til að fá að spila meira fyrir EM í sumar en hann hefur líka verið orðaður við Tottenham og Lazio.

Fyrr í þessum mánuði þótti líklegt að Giroud myndi fara til Inter en þá gengu skiptin ekki í gegn.

Núna hefur félagið hins vegar áhuga á að landa Frakkanum í dag áður en félagaskiptaglugginn lokar.
Athugasemdir
banner
banner