„Ég er bara mjög ánægður að enda þetta með sigri,“ sagði Srdjan Tufegdzic þjálfari KA eftir 2-1 sigur á Grindavík í 21.umferð Pepsi-deildar karla í dag.
Lestu um leikinn: KA 2 - 1 Grindavík
„Við vorum að spila á móti mjög flottu liði Grindavíkur, flottan mannskap og góðan þjálfara. Ég vildi bara að ég og strákarnir gæfum þessum bestu stuðningsmönnum landsins sigur í síðasta heimaleiknum.“
„Ég er sáttur að við erum ennþá í 5. sæti, við höfum tækifæri í síðasta leik að koma okkur ennþá ofar og enda þetta í 4. sæti. Miðað við allt þá held ég að þetta sé bara flott tímabil hjá okkur eftir 13 ára fjarveru úr efstu deild. Ef ég þekki sögu KA rétt þá eru 29 stig næst besti árangur KA í efstu deild í sögunni.“
Tufa segir að Milos Milojevic þjálfari Breiðabliks hafi gefið sér ráð til að stoppa Andra Rúnar Bjarnason, framherja Grindavíkur.
„Ég og Milos erum góðir vinir og hann gaf mér nokkur tips til að stoppa hann í dag,“ sagði hann brosandi.“
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir