Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 03. desember 2018 11:07
Elvar Geir Magnússon
Gummi Ben valdi stjörnulandslið Íslands
Stóra fótboltabókin.
Stóra fótboltabókin.
Mynd: Sögur
Meðal bóka sem eru komnar út fyrir jólin er Stóra fótboltabókin með Gumma Ben.

„Hér segir hann sína eigin sögu, velur besta landslið Íslands fyrr og síðar, kynnir okkur fyrir sterkustu leikmönnum heims, bæði konum og körlum, og rifjar upp æskuár snillinganna. Hann grúskar í ótal mörgu og finnur merkilegar og skrýtnar hliðar á öllu," segir í lýsingu á bókinni.

Í henni opinberar hann meðal annars val sitt á úrvalsliði íslenska landsliðsins frá upphafi.

Hann segir í viðtali við Brennsluna að valið hafi verið gríðarlega erfitt. Kolbeinn Sigþórsson og Alfreð Finnbogason eru meðal leikmanna sem ekki fengu pláss í liðinu.

Hér má sjá val Gumma Ben:

Hannes Þór Halldórsson

Guðni Bergsson
Ragnar Sigurðsson
Atli Eðvaldsson
Hermann Hreiðarsson

Jóhann Berg Guðmundsson
Aron Einar Gunnarsson
Ásgeir Sigurvinsson
Arnór Guðjohnsen

Gylfi Þór Sigurðsson

Eiður Smári Guðjohnen

Varamenn: Bjarni Sigurðsson (m), Birkir Már Sævarsson, Sigurður Jónsson, Ólafur Þórðarson, Rúnar Kristinsson, Eyjólfur Sverrisson, Pétur Pétursson.
Athugasemdir
banner
banner
banner