Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25126 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR31.12.2024, 10:30

100 mest lesnu fótboltafréttir ársins 2024

Fóboltaárinu 2024 er að ljúka og því er kominn tími á að renna yfir mest lesnu fréttir ársins á Fótbolta.net. Topp 100 listinn er fjölbreyttur en þar má finna fréttir úr hinum ýmsu áttum fótboltans, innanlands sem utan. Fótbolti.net þakkar fyrir árið sem er að líða!

FRÉTTIR30.12.2024, 17:00

Alex Neil tekinn við Millwall (Staðfest)

Hinn 43 ára gamli Alex Neil er nýr stjóri Millwall í Championship-deildinni og hefur gert langtímasamning við félagið. Hann var í stúkunni þegar Millwall gerði markalaust jafntefli við Coventry í gær en Millwall er í þrettánda sæti. Neil kom Norwich upp í ensku úrvalsdeildina 2015 og tekur nú við Millwall sem lét Neil Harris fara fyrr í þessum mánuði. Alex Neil hefur meðal annars stýrt Preston, Sunderland og Stoke. Hann var rekinn frá Stoke fyrir um ári síðan.

FRÉTTIR30.12.2024, 15:03

Sergio Conceicao tekur við AC Milan (Staðfest)

AC Milan hefur staðfest ráðningu á Sergio Conceicao; hann er nýr stjóri liðsins. Hann tekur við starfinu af landa sínum, Paulo Fonseca, sem var vikið úr starfi í gær. Fonseca var rekinn eftir 1-1 jafntefli gegn Roma í gær en fyrir leikinn var talið um að hann þyrfti sigur til að halda starfinu. Hann var aðeins sex mánuði í starfinu.

FRÉTTIR30.12.2024, 10:43

Misstu Axel Frey og fengu annan Axel Frey (Staðfest)

Axel Freyr Ívarsson hefur gert þriggja ára samning við Fjölni í Lengjudeildinni. <i>„Axel sem er uppalinn á Skaganum er afar kraftmikill leikmaður sem skoraði 9 mörk og átti 12 stoðsetningar með liði Kára á liðnu tímabili,"</i> segir í tilkynningu Fjölnis. <i>„Við hjá Fjölni erum afar ánægð með að fá Axel í okkar lið og óskum honum alls hins besta."</i> Axel, sem er nítján ára, hefur leikið með Kára á Akranesi í 3. deildinni undanfarin ár.

FRÉTTIR29.12.2024, 23:00

Auðunn Ingi aftur í Dalvík/Reyni frá Þór (Staðfest)

Auðunn Ingi Valtýsson er genginn til liðs við Dalvík/Reyni frá Þór en hann gerir tveggja ára samning við félagið. Auðunn er markvörður fæddur árið 2002 en hann lék á láni hjá Dalvík/Reyni í 2. deild sumarið 2023.

FRÉTTIR29.12.2024, 06:00

Breki Þór fer með Árna til Grindavíkur (Staðfest)

Greint var frá því í gær að Árni Salvar Heimisson væri búinn að gera lánssamning við Grindavík til að spila í Lengjudeildinni næsta sumar. Hann er þó ekki eini leikmaður ÍA sem er lánaður til Grindavíkur fyrir næstu leiktíð því Breki Þór Hermannsson fer með honum.

FRÉTTIR27.12.2024, 22:00

Pelach rekinn frá Stoke (Staðfest)

Stoke City er búið að reka Narcis Pelach úr stöðu aðalþjálfara meistaraflokks eftir aðeins 19 leiki við stjórnvölinn.

FRÉTTIR27.12.2024, 14:30

Emilía Kiær í RB Leipzig (Staðfest)

Landsliðskonan Emilía Kiær Ásgeirsdóttir hefur yfirgefið Nordsjælland og gengið í raðir þýska félagsins RB Leipzig. Hin 19 ára gamla Emilía skrifar undir samning við Leipzig sem gildir til ársins 2028.

FRÉTTIR27.12.2024, 08:00

Nikola Kristinn til KFA (Staðfest)

Miðjumaðurinn Nikola Kristinn Stojanovic er genginn til liðs við KFA og gerir tveggja ára samning við félagið.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.