Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 01. maí 2022 12:19
Elvar Geir Magnússon
Elli Eiríks mætir til leiks og dæmir Breiðablik - FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Málarameistarinn Erlendur Eiríksson, reynslumesti dómari Bestu deildarinnar, flautar sinn fyrsta leik á tímabilinu í kvöld.

Hann dæmir stórleik Breiðabliks og FH á Kópavogsvelli. Jóhann Gunnar Guðmundsson og Andri Vigfússon verða aðstoðardómarar.

Erlendur var fjórði dómari í stórleik Vals og KR í gær.

Hér að neðan má sjá hverjir dæma leikina sem framundan eru.

sunnudagur 1. maí
16:00 ÍBV-Leiknir R. (Egill Arnar Sigurþórsson)
19:15 Breiðablik-FH (Erlendur Eiríksson)

Besta-deild karla
18:00 KA-Keflavík (Pétur Guðmundsson)
19:15 Fram-ÍA (Elías Ingi Árnason)
19:15 Víkingur R.-Stjarnan (Ívar Orri Kristjánsson)
Athugasemdir
banner
banner