Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 01. júní 2022 17:40
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Skotlands og Úkraínu: McTominay í miðverði
Mynd: EPA
Mynd: EPA

Scott McTominay tekur byrjunarliðssæti Kieran Tierney í þriggja manna varnarlínu Skotlands ásamt Grant Hanley og Liam Cooper. 


Aaron Hickey fær tækifæri í hægri vængbakverði en hann er vinstri bakvörður að upplagi. Þá eru Billy Gilmour, Callum McGregor og John McGinn á miðjunni með Che Adams og Lyndon Dyes í fremstu víglínu.

Andy Robertson er á sínum stað á vinstri vængnum.

Úkraínumenn tefla aðallega fram leikmönnum sem spila erlendis. Þeir sem spila í heimalandinu hafa verið stopp síðan í desember.

Oleksandr Zinchenko, Andryi Yarmolenko og Ruslan Malinovskyi eru meðal byrjunarliðsmanna í flottu liði Úkraínu sem mun berjast til síðasta blóðdropa í kvöld.

Skotland: Gordon, McTominay, Hanley, Cooper; Hickey, Gilmour, McGregor, Robertson; McGinn; Adams, Dykes.

Úkraína: Bushchan, Karavaev, Zabarnyi, Matviyenko, Mykolenko, Stepanenko, Yarmolenko, Malinovskyi, Zinchenko, Tsygankov, Yaremchuk


Athugasemdir
banner
banner
banner