Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 02. janúar 2020 20:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Milner inn fyrir Keita sem meiddist í upphitun
James Milner.
James Milner.
Mynd: Getty Images
Það var verið að flauta á leik Liverpool og Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni á Anfield. Liverpool var að komast 1-0 yfir.

Liverpool þurfti að gera breytingu á byrjunarliði sínu eftir upphitunina. Naby Keita meiddist og getur ekki spilað leikinn. Inn í hans stað kemur reynsluboltinn James Milner.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, ætlaði sér að seja Keita inn í byrjunarliðið fyrir Adam Lallana og átti það að vera eina breytingin frá 1-0 sigrinum á Wolves fyrir áramót.

James Pearce, sem skrifar um Liverpool fyrir The Athletic, segir að Keita sé að glíma við nárameiðsli.

Sjá einnig:
Byrjunarlið Liverpool og Sheffield United: Keita á miðjunni
Athugasemdir
banner
banner