Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 02. janúar 2023 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Manchester United gaf út dagatal með myndum af Ronaldo
Mynd: EPA

Manchester United rifti samningi Cristiano Ronaldo í desember eftir að hann fór í viðtal hjá Piers Morgan og gagnrýndi félagið.


Hann hefur nú samið við Al Nassr í Sádí Arabíu og mun spila með félaginu til sumarsins 2025.

Breski fréttaritarinn Tom Williams vakti athygli að vandræðalegum mistökum Manchester United en félagið gaf út dagatal fyrir árið 2023 með myndum af Cristiano Ronaldo fremst.

Felix Keith fréttaritari hjá The Times svaraði færslu Williams með myndum af heimasíðu United þar sem félagið var að selja allskonar dót með myndum af Ronaldo.


Athugasemdir
banner
banner
banner