Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 02. febrúar 2020 14:42
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Þýskaland: Guðlaugur Victor lagði upp í jafntefli
Guðlaugur Victor lagði upp fyrra mark Darmstadt í 2-2 jafntefli fyrr í dag.
Guðlaugur Victor lagði upp fyrra mark Darmstadt í 2-2 jafntefli fyrr í dag.
Mynd: Getty Images
Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Darmstadt sem tók á móti Osnabruck í þýsku B-deildinni í dag.

Leiknum lauk með 2-2 jafntefli og Guðlaugur Victor átti flottan leik en hann lagði upp fyrra mark Darmstadt.

Guðlaugur fór af velli á 81. mínútu og stuttu síðar jafnaði Felix Platte fyrir heimamenn í 2-2 sem urðu eins og fyrr segir lokatölur.

Darmstadt er í 11. sæti með 23 stig, með fjórum stigum minna en Rúrik Gíslason og félagar í Sandhausen, Rúrik var ekki í leikmannahópi liðsins í dag sem tapaði 2-0 gegn Nurnberg.

Athugasemdir
banner
banner