Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 02. júní 2021 19:28
Victor Pálsson
Cassano steinhissa á ummælum Vieri um Ronaldo
Mynd: Getty Images
Christian Vieri, goðsögn Inter Milan og ítalska landsliðsins, segir að Jose Mourinho vilji fá Cristiano Ronaldo til Roma í sumar.

Ronaldo er á mála hjá Juventus í dag en er oft orðaður við brottför og telur Vieiri að hann gæti unnið með Ronaldo á ný. Þeir þekkjast eftir að hafa verið saman hjá Real Madrid.

Mourinho tekur við liði Roma í sumar en hann var rekinn frá Tottenham fyrr á þessu ári.

„Mourinho vill fá Cristiano Ronaldo til Roma," sagði Vieri í samtali við Bobo TV.

Antonio Cassano, annar fyrrum leikmaður Ítalíu, er ósammála Vieri og segir þessar fréttir kjaftæði.

„Ronaldo til Roma? Það er kjaftæði. Ronaldo og Mourinho náðu ekki vel saman hjá Real Madrid. Hvernig geturðu haldið að hann sé á leið til Roma?"

„Ég veit ekki hvort það sé því þeir eru með sama umboðsmann en hvernig geturðu haldið þessu fram?"
Athugasemdir
banner
banner
banner