Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 02. september 2022 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Enn fullt af miðum til á leikinn
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samkvæmt upplýsingum sem undirritaður fékk frá KSÍ í morgun þá eru um það bil 4400 miðar farnir úr kerfinu hjá KSÍ fyrir leikinn gegn Hvíta-Rússlandi á eftir.

Flautað verður til leiks klukkan 17:30 á Laugardalsvelli á þessum ágæta föstudegi.

Lestu um leikinn: Ísland 6 -  0 Hvíta-Rússland

Það er um að gera að skella sér á völlinn og styðja við bakið á liðinu en stelpurnar eru í góðum möguleika að komast á HM í fyrsta sinn. Sigur í kvöld er algjört lykilatriði.

Það er enn fullt af miðum til á leikinn á Laugardalsvelli í kvöld, en stelpurnar eiga svo sannarlega stuðninginn skilið.

Smelltu hér til að fara í miðasöluna

Sjá einnig:
Sara Björk: Fólk þarf að fara úr sófanum og mæta
Steini: Verður gaman að sjá fólkið sem tuðar mest á samfélagsmiðlum
Athugasemdir
banner
banner
banner