Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 02. október 2021 13:19
Brynjar Ingi Erluson
Bjössi Hreiðars verður aðstoðarmaður Óla Jó
Sigurbjörn verður aðstoðarmaður Óla Jó
Sigurbjörn verður aðstoðarmaður Óla Jó
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurbjörn Hreiðarsson er að taka við sem aðstoðarþjálfari FH en þetta herma heimildir Fótbolta.net.

Sigurbjörn hefur síðustu tvö tímabil stýrt Grindavík en hann hætti með liðið eftir þetta tímabil.

Þar áður var hann aðstoðarþjálfari Vals undir stjórn Ólafs Jóhannessonar áður en þeir voru látnir fara frá félaginu.

Þeir munu endurnýja kynni sín hjá FH en samkvæmt heimildum Fótbolta.net verður Sigurbjörn aðstoðarmaður Ólafs í Hafnarfirðinum.

Ólafur framlengdi samning á dögunum til næstu tveggja ára en Davíð Þór Viðarsson, sem var aðstoðarmaður hans, steig til hliðar.

FH hafnaði í 6. sæti deildarinnar í Pepsi Max-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner