Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 02. október 2021 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Suarez sendi Koeman skilaboð þegar hann fagnaði
Mynd: Getty Images
Luis Suarez leikmaður Atletico Madrid átti frábæran leik fyrir félagið gegn sínum gömlu félögum í Barcelona í kvöld.

Leiknum lauk með 2-0 sigri Atletico og Suarez skoraði eitt og lagði upp hitt.

Suarez fagnaði markinu sínu eins og hann væri að tala í síma. Þar virðist hann vera gera lítið úr símtali milli hans og Koeman þegar honum var tilkynnt að hann mætti fara frá Barcelona.

Suarez segir að símtalið hafi aðeins staðið í eina mínútu.

„Það var erfitt þegar Barcelona sagði mér að þeir þurftu ekki á mér að halda, ég átti ekki von á því. Koeman hringdi í mig og sagði að ég væri ekki inn í áætlunum hans."

Sjáðu viðbrögð Koeman við marki Suarez hér fyrir neðan.




Athugasemdir
banner
banner