Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 02. nóvember 2019 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aníta og Eva María framlengja við ÍA
Eva María Jónsdóttir
Eva María Jónsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA framlengdi í vikunni við tvo leikmenn hjá kvennaliði félagsins.

Aníta Ólafsdóttir skrifar undir tveggja ára samning við félagið. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Aníta sýnt að hún er öflugur markvörður sem á framtíðina fyrir sér. Aníta er fædd árið 2003 og hefur leikið 11 deildarleiki fyrir ÍA. Þá hefur hún leikið með U16 og U17 ára landsliðum Íslands.

Þá framlengdi ÍA við Evu Maríu Jónsdóttur, einnig til tveggja ára. Hún hefur undanfarin ár verið hluti af ungu og efnilegu liði ÍA.

Eva María er fædd árið 1999 og hefur leikið 44 leiki í deild og bikar með ÍA og skorað sex mörk í þeim leikjum.
Athugasemdir
banner
banner