Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 03. september 2022 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Breiðablik bikarmeistari í 2. flokki kvenna
Bikarmeistararnir.
Bikarmeistararnir.
Mynd: Aðsend
Breiðablik/Augnablik er bikarmeistari í 2. flokk eftir 5-1 sigur á ÍA á Kópavogsvelli fyrr í þessari viku.

Melina Ayres skoraði fyrstu þrjú mörk leiksins og Kópavogsliðið leiddi 3-0 í hálfleik.

Sara Svanhildur Jóhannsdóttir bætti við fjórða markinu áður en að Vala María Sturludóttir minnkaði muninn fyrir ÍA á 87. mínútu.

Karen María Sigurgeirsdóttir gerði fimmta mark Breiðabliks/Augnabliks mínútu síðar og þar við sat. Lokatölur 5-1 fyrir Kópavogsfélagið, sem tapaði í úrslitaleik í meistaraflokki gegn Valskonum.

Þjálfarar liðsins eru þau Kristrún Lilja Daðadóttir og Hilmar Sigurjónsson.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner