Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 03. október 2020 15:54
Ívan Guðjón Baldursson
England: Gylfi lagði upp í góðum sigri
Mynd: Getty Images
Everton 4 - 2 Brighton
1-0 Dominic Calvert-Lewin ('16)
1-1 Neal Maupay ('41)
2-1 Yerry Mina ('45)
3-1 James Rodriguez ('52)
4-1 James Rodriguez ('70)
4-2 Yves Bissouma ('92)

Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Everton og lagði upp fyrsta mark leiksins í góðum sigri gegn Brighton.

Gylfi byrjaði á miðjunni í stað Andre Gomes og gaf frábæra fyrirgjöf með vinstri sem Dominic Calvert-Lewin skallaði í netið.

Everton var sterkari aðilinn en Neal Maupay jafnaði fyrir Brighton eftir skelfileg mistök Jordan Pickford sem virkaði afar óöruggur á milli stanganna í dag.

Það sakaði þó ekki því Yerry Mina stangaði aukaspyrnu frá James Rodriguez í netið rétt fyrir leikhlé. James tvöfaldaði svo forystuna í upphafi síðari hálfleiks og innsiglaði kólumbíska stórstjarnan sigur Everton á 70. mínútu.

Brighton reyndi að minnka muninn en Yerry Mina, samlandi James, átti stórleik í hjarta varnarinnar. Yves Bissouma náði þó að minnka muninn með glæsilegu marki í uppbótartíma og urðu lokatölur 4-2.

Everton hefur farið gríðarlega vel af stað á nýju tímabili undir stjórn Carlo Ancelotti og er með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir.

Brighton hefur sýnt þokkalega takta gegn erfiðum andstæðingum en er aðeins með þrjú stig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner