Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 04. janúar 2021 16:28
Elvar Geir Magnússon
Kristian æfði með aðalliði Ajax
Mynd: Hulda Margrét
Hinn afar efnilegi Kristian Nökkvi Hlynsson var í dag kallaður upp á æfingu með aðalliði hollenska stórliðsins Ajax.

Kristian er sextán ára gamall og er í akademíu félagsins en hann kom frá Breiðabliki í byrjun síðasta árs.

Hann fékk að byrja sinn fyrsta leik fyrir Jong Ajax, varaliðið, í síðasta mánuði í leik sem endaði með 2-2 jafntefli.

Hér að neðan má sjá myndir af þessum spennandi leikmanni á æfingu aðalliðsins í dag en Ajax birti þær á Twitter síðu sinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner