Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 04. mars 2024 23:42
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikar kvenna: Góður sigur ÍR á HK
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR 4 - 2 HK
1-0 María Marín Asensio ('4 )
1-1 Arna Sól Sævarsdóttir ('6 )
2-1 María Marín Asensio ('10 )
3-1 Berta Sóley Sigtryggsdóttir ('45 )
3-2 Elísa Birta Káradóttir ('51 )
4-2 Linda Eshun ('62 )

ÍR-ingar unnu frábæran 4-2 sigur á HK í B-deild Lengjubikars kvenna á ÍR-vellinum í kvöld.

María Marín Asensio kom ÍR-ingum yfir en Arna Sól Sævarsdóttir jafnaði tveimur mínútum síðar.

Á tíundu mínútu skoraði María Marín sitt annað mark áður en Berta Sóley Sigtryggsdóttir kom ÍR-ingum í tveggja marka forystu rétt fyrir lok fyrri hálfleiks.

Elísa Birta Káradóttir minnkaði muninn fyrir HK snemma í síðari hálfleik en Linda Eshun gerði út um vonir HK með fjórða marki ÍR eftir klukkutímaleik.

ÍR-ingar eru með sex stig í þriðja sæti en HK í sjötta sæti með þrjú stig.
Lengjubikar kvenna - B-deild
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Afturelding 7 4 2 1 22 - 7 +15 14
2.    Grindavík 7 3 2 2 16 - 17 -1 11
3.    ÍA 7 2 4 1 12 - 10 +2 10
4.    HK 7 3 1 3 11 - 10 +1 10
5.    ÍR 7 3 0 4 10 - 14 -4 9
6.    Fram 7 2 2 3 18 - 21 -3 8
7.    FHL 7 2 2 3 12 - 17 -5 8
8.    Grótta 7 1 3 3 10 - 15 -5 6
Athugasemdir
banner
banner