Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 04. september 2022 12:07
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Brighton og Leicester: Vardy bekkjaður
Daka og Iheanacho koma inn
Mynd: EPA
Mynd: EPA

Brighton tekur á móti Leicester City í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og hafa byrjunarliðin verið kynnt.


Heimamenn í Brighton gera aðeins eina breytingu frá 2-1 tapi gegn nýliðum Fulham í miðri viku á meðan gestirnir frá Leicester gera tvær breytingar eftir tap á heimavelli gegn Manchester United.

Danny Welbeck kemur inn í byrjunarliðið hjá Brighton fyrir Pervin Estupinan sem fer á bekkinn. Leandro Trossard færir sig á vinstri kantinn og tekur stöðu Estupinan í byrjunarliðinu. Graham Potter hefur miklar mætur á Welbeck og saknaði hans í síðustu umferð.

Brendan Rodgers hefur ákveðið að setja hinn 35 ára gamla Jamie Vardy á bekkinn þar sem hann er aðeins kominn með tvær stoðsendingar í fimm fyrstu umferðum úrvalsdeildartímabilsins. Kelechi Iheanacho tekur stöðuna hans í byrjunarliðinu og þá kemur Patson Daka inn fyrir Kiernan Dewsbury-Hall.

Brighton er með tíu stig eftir fimm umferðir á meðan Leicester hefur farið afar illa af stað og er á botni deildarinnar með eitt stig.

Brighton: Sanchez, Veltman, Dunk, Webster, March, Mwepu, Mac Allister, Caicedo, Trossard, Gross, Welbeck
Varamenn: Steele, Lamptey, Colwill, Alzate, Undav, Mitoma, Van Hecke, Estupinan, Gilmour

Leicester: Ward, Justin, Evans, Ndidi, Thomas, Tielemans, Soumare, Maddison, Daka, Barnes, Iheanacho
Varamenn: Iversen, Vardy, Albrighton, Perez, Praet, Castagne, Mendy, Dewsbury-Hall, Amartey


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner