Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fös 04. nóvember 2022 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Verða að gera betur gegn hákörlunum úr Meistaradeildinni
Mynd: Getty Images

Roma fer í umspil um sæti í 16 liða úrslit Evrópudeildarinnar eftir sigur á Ludogorets í gær.


Leiknum lauk með 3-1 sigri en Roma var marki undir í hálfleik. Jose Mourinho stjóri liðsins segir að liðið verði að sýna betri frammistöðu í umspilinu.

„Við snérum þessu við en við verðum að spila betur. Nú mætum við hákörlunum sem koma úr Meistaradeildinni og verðum að gera betur í öllu," sagði Mourinho.

Liðin sem höfnuðu í 3. sæti í sínum riðli í Meistaradeildinni mæta liðunum sem höfnuðu í 2. sæti í sínum riðlum í Evrópudeildinni í umspilinu. Liðin í Meistaradeildinni eru meðal annars Ajax, Juventus og Barcelona.


Athugasemdir
banner