Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 05. mars 2024 18:50
Ívan Guðjón Baldursson
Ekki viss hvort Bayern ætli að virkja endurkaupsákvæði Zirkzee
Mynd: EPA
FC Bayern er orðað við sjóðheitan sóknarmann Bologna í ítölsku deildinni, Joshua Zirkzee sem gekk til liðs við Bologna frá Bayern í ágúst 2022.

Bayern er með endurkaupsákvæði sem hljóðar upp á 40 milljónir evra, en Bologna metur leikmanninn á meira heldur en það.

Bæjarar eiga þó Harry Kane og Mathys Tel í framherjastöðunni hjá sér, en Zirkzee er fjölhæfur og getur einnig spilað sem kantmaður eða sóknartengiliður.

„Ég veit ekki hvort við munum virkja endurkaupsákvæðið fyrir Zirkzee eða ekki. Það er eitthvað sem Max Eberl tekur ákvörðun um í sumar, ég er ekki að sinna því starfi," segir Karl-Heinz Rummenigge, meðlimur í stjórn FC Bayern.
Athugasemdir
banner
banner