Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 05. mars 2024 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Gabríel Snær gerir þriggja ára samning við Breiðablik
Mynd: Breiðablik
Táningurinn efnilegi Gabríel Snær Hallsson er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks.

Gabríel Snær er fæddur árið 2007 og er partur af U17 ára landsliði Íslands sem er statt í Finnlandi þessa dagana til að spila vináttulandsleiki við jafnaldra sína frá Finnlandi.

Gabríel er uppalinn hjá Blikum og hefur komið við sögu í einum keppnisleik með meistaraflokki, í efri hluta Bestu deildarinnar í fyrra. Hann fékk þá að spila síðustu mínúturnar í 0-2 tapi gegn Stjörnunni í október.

Gabríel á tvo leiki að baki fyrir U15 landslið Íslands og fjóra fyrir U17 landsliðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner