Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 05. mars 2024 13:00
Elvar Geir Magnússon
Tottenham hefur áhuga á leikmanni með Arsenal húðflúr
Morten Hjulmand.
Morten Hjulmand.
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur áhuga á miðjumanninum Morten Hjulmand sem spilar fyrir Sporting Lissabon. Njósnarar Tottenham hafa verið að fylgjast grannt með honum.

Hjulmand er 24 ára Dani sem var hjá Lecce áður en hann kom til Sporting á síðasta ári. Hann er fjölhæfur miðjumaður sem orðið hefur lykilmaður hjá Sporting.

Portúgalska blaðið Record sendi njósnara til að fylgjast með Hjulmand þegar Sporting vann granna sína í Benfica 2-1 síðasta fimmtudag.

Hjulmand er með Arsenal húðflúr en hann er mikill stuðningsmaður liðsins og Patrick Vieira var fyrirmynd hans í æsku. Arsenal eru erkifjendur Tottenham og spurning hvernig stuðningsmenn Spurs taka í þetta.

„Pabbi minn studdi Arsenal og við horfðum saman á leiki þegar við vorum yngri,“ sagði Hjulmand í viðtali á sínum tíma þegar hann var spurður út í húðflúrið.
Athugasemdir
banner
banner
banner