Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mán 05. september 2022 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Smith Rowe meiddist eftir leikinn gegn Man Utd
Emile Smith Rowe og Martin Ödegaard
Emile Smith Rowe og Martin Ödegaard
Mynd: EPA
Emile Smith Rowe, leikmaður Arsenal, virtist meiðast eftir 3-1 tap liðsins við Manchester United á Old Trafford í gær en það er David Ornstein hjá Athletic sem segir frá þessu á Twitter.

Smith-Rowe kom inná sem varamaður fyrir Martin Ödegaard þegar um það bil fimmtán mínútur voru eftir af leiknum.

Hann hefur aðeins spilað 47 mínútur á þessu tímabili en eitt af því sem Mikel Arteta, stjóri Arsenal, kallaði eftir undir lok gluggans var að fá miðjumann.

Thomas Partey, Mohamed Elneny og Reiss Nelson eru allir á meiðslalistanum en nú er útlit fyrir að Smith Rowe sé kominn á listann.

Leikmaðurinn meiddist er leikmenn skokkuðu á vellinum eftir leik og fylgdi Carlos Cuesta, aðstoðarþjálfari Arsenal, Smith Rowe af vellinum í kjölfarið.


Athugasemdir
banner
banner
banner