Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 05. október 2020 09:45
Magnús Már Einarsson
Cavani sagður búinn í læknisskoðun hjá Manchester United
Mynd: Getty Images
ESPN segir að Edinson Cavani sé búinn að standast læknisskoðun hjá Manchester United.

Cavani hefur verið félagslaus síðan samningur hans hjá PSG rann út í sumar.

Þessi 33 ára gamli Úrúgvæi er að gera tveggja ára samning við Manchester United.

Samningurinn verður uppsegjanlegur af beggja hálfu næsta sumar.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, er að styrkja hópinn í dag en vinstri bakvörðurinn Alex Telles er einnig að koma til félagsins frá Porto.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner