Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 06. mars 2018 12:50
Elvar Geir Magnússon
Lögreglan með viðbragðsáætlun ef Man City tryggir sér titilinn gegn Man Utd
Lögreglan fyrir utan heimavöll City.
Lögreglan fyrir utan heimavöll City.
Mynd: Getty Images
Lögreglan í Manchester undirbýr gríðarstóra viðbragðsáætlun ef Manchester City mun tryggja sér Englandsmeistaratitilinn með því að vinna erkifjendurna í Manchester United.

Liðin eigast við á Etihad leikvanginum þann 7. apríl og það eru auknar líkur á því að sigur hjá Pep Guardiola og hans mönnum geri það að verkum að þeir geti fagnað titlinum fyrir framan granna sína.

Leikurinn verður 17:30 á laugardegi og ljóst að það verður líf og fjör á götum Manchester það laugardagskvöld ef sigurinn verður í höfn. Leiktíminn gerir það líka að verkum að líklegt er að margir vallargestir muni eyða góðum tíma við drykkju fyrir leikinn.

Áætlað er að auka löggæslu til mikilla muna, líka á börum borgarinnar þar sem stuðningsmenn beggja liða verða samankomnir til að horfa á leikinn.

Rætt er um að búa til sérstök svæði fyrir stuðningsmennina, líkt og lögreglan gerir kringum Evrópuleiki í borginni.

City er sem stendur 16 stigum á undan United. Bæði lið eiga tvo deildarleiki fram að viðureign liðanna. City ferðast til Stoke City og Everton á meðan United tekur á móti Liverpool og Swansea.

Ef bilið helst í 16 stigum þá þýðir það að sigur City í leiknum gegn United myndi færa forystuna í 19 stig þegar sex umferðir verða eftir.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner