Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   mið 06. mars 2024 21:52
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikarinn: Þrír sigrar í röð hjá Kára - Hektor Bergmann með þrennu
Mynd: Kári
Kári 4 - 1 Hvíti riddarinn
0-1 Hilmar Þór Sólbergsson ('12 )
1-1 Sigurjón Logi Bergþórsson ('14 )
2-1 Hektor Bergmann Garðarsson ('17 )
3-1 Hektor Bergmann Garðarsson ('45 )
4-1 Hektor Bergmann Garðarsson ('77 )

Kári vann þriðja sigur sinn í röð í B-deild Lengjubikarsins er liðið bar sigurorð af Hvíta riddaranum, 4-1, í Akraneshöllinni í kvöld.

Hilmar Þór Sólbergsson kom gestunum yfir á 12. mínútu en Sigurjón Logi Bergþórsson svaraði fyrir Kára tveimur mínútum síðar.

Hinn 18 ára gamli Hektor Bergmann Garðarsson stal síðan sviðsljósinu. Hann kom Kára yfir á 17. mínútu áður en hann bætti við öðru undir lok hálfleiksins. Þrennan var síðan fullkomnuð þrettán mínútum fyrir leikslok.

Kári er á toppnum í riðli 3 með fullt hús stiga eftir þrjá leiki en Hvíti riddarinn í næst neðsta sæti með 3 stig.
Lengjubikar karla - B-deild, riðill 3
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Kári 5 5 0 0 18 - 4 +14 15
2.    KFG 5 4 0 1 22 - 6 +16 12
3.    Ægir 5 3 0 2 14 - 10 +4 9
4.    Hvíti riddarinn 5 2 0 3 12 - 17 -5 6
5.    KFK 5 1 0 4 5 - 22 -17 3
6.    Sindri 5 0 0 5 9 - 21 -12 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner