Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   fim 07. mars 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Chelsea íhugar að fá stjörnu Athletic
Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea er að íhuga að virkja klásúlu í samningi Nico Williams, leikmanns Athletic Bilbao, en það er Telegraph sem greinir frá.

Nico, sem er 21 árs gamall, er ein af stjörnum Athletic og hefur verið síðustu ár.

Framherjinn er með 43 milljóna punda klásúlu í samningi sínum sem verður að teljast aðlaðandi fyrir stóru félögin.

Telegraph segir að Chelsea sé að íhuga að virkja klásúluna en það er þó einn hængur á og það eru laun Williams. Hann þénar nú um 100 þúsund pund á viku hjá Athletic.

Ef hann fengi svipuð laun hjá Chelsea þá væri hann með launahæstu mönnum félagsins.

Williams hefur komið að sautján mörkum í La Liga á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner