Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 07. mars 2024 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Haaland svarar Trent: Veit ekki hvernig er að vinna þrennuna
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Trent Alexander-Arnold, leikmaður Liverpool, tjáði sig um titilbaráttuna við Manchester City, þar sem liðin eru að berjast um enska úrvalsdeildartitilinn enn eina ferðina í ár eftir að Man City hefur haft betur síðustu þrjú ár í röð.

   06.03.2024 20:47
Alexander-Arnold skaut á Man City - „Titlarnir hafa meiri þýðingu fyrir okkur“


Stórveldin mætast í risaslag á sunnudaginn og var Erling Braut Haaland, leikmaður Man City, spurður út í ummælin í viðtali hjá Sky Sports.

„Ef hann vill segja þetta, allt í lagi. Ég hef verið hérna í eitt ár og er búinn að vinna þrennuna. Það var frekar góð tilfinning en ég er ekki viss um að hann þekki þessa tilfinningu," sagði Haaland.

„Hann getur talað eins mikið og hann vill. Ég veit ekki til hvers hann er að því, en mér er alveg sama. Þetta truflar mig ekki."

Haaland segist vera gríðarlega spenntur fyrir risaslagnum, enda er aðeins eitt stig sem skilur liðin að í titilbaráttunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner