Salah, Rashford, Guehi, Ten Hag, Dewsbury-Hall og fleiri í pakka dagsins
   þri 07. ágúst 2018 23:59
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Willian kennir dóttur sinni um myndina
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Willian hefur viðurkennt það að vera feginn því að Antonio Conte sé farinn frá Chelsea.

Sjá einnig:
Willian: Vona að Sarri sé ekki eins og Conte

Samband Willian og Conte var ekki vinalegt í fyrra en Willian fékk að spila talsvert minna en hann vildi. Eftir sigur gegn Manchester United í úrslitaleik FA-bikarsins birti Willian athyglisverða mynd á samfélagsmiðlum.

Myndin var tekin eftir sigurinn, liðsmynd, en þar var Willian búinn að þekja líkama og andlit Conte með bikurum þannig að ekkert sást í ítalska knattspyrnustjórann.

Willian segist ekki hafa verið að verki þarna.

„Dóttir mín var að leika sér í símanum og hún setti þessa bikara yfir Conte," á Willian að hafa sagt við ESPN Brasil.

„Eftir úrslitaleikinn fór ég beint upp í flugvél og til Brasilíu. Þegar ég kom til Brasilíu birti ég nokkar myndir. Ég var þreyttur og þessi mynd fór með."

Það eru ekki margir að trúa þessu hjá Brasilíumanninum...







Athugasemdir
banner
banner