Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 07. september 2022 20:35
Aksentije Milisic
3. deild: Elliði gulltryggði sætið sitt í deildinni
Mynd: Twitter

Elliði 4-1 Kormákur/Hvöt
1-0 Kári Sigfússon - Víti
2-0 Nikulás Ingi Björnsson
3-0 Kári Sigfússon
4-0 Pétur Óskarsson
4-1 Aco Pandurevic
Rautt spjald: Goran Potkozarac (Kormákur/Hvöt)


Það var einn leikur á dagskrá í kvöld í þriðju deild karla en þá áttust við Elliði og Kormákur/Hvöt. Þetta var mikilvægur leikur í fallbaráttunni í 3. deildinni.

Elliði komst í 1-0 með marki úr vítaspyrnu og tókst heimamönnum síðan að tvöfalda forystuna fyrir hlé.

Heimamenn hættu ekki og komu forystunni í 4-0 í síðari hálfleiknum en Goran Potkozarac fékk rautt spjald hjá gestunum í stöðunni 3-0.

Kormákur/Hvöt náði að skora eitt sárabótamark í restina en 4-1 sigur Elliða staðreynd. Með þessum sigri gulltryggði Elliði sæti sitt í deildinni.

Kormákur/Hvöt er þremur stigum frá falli þegar tvær umferðir eru eftir.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner