Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 08. mars 2024 08:24
Elvar Geir Magnússon
Klopp: Viltu að ég taki hann með mér í frí?
Mynd: EPA
Það er alltaf stutt í glensið hjá Jurgen Klopp stjóra Liverpool. Eftir að Liverpool rúllaði yfir Sparta Prag 5-0 í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í gær fékk Klopp áhugaverða spurningu á fréttamannafundi.

Fréttamaðurinn virðist hafa gleymt því að Klopp mun hætta hjá Liverpool í sumar því hann spurði hvort það væri einhver í tékkneska liðinu sem þýski stjórinn hefði áhuga á að fá til Liverpool?

„Ég hætti í sumar," svaraði Klopp og uppskar hlátur í salnum áður en hann bætti við:

„Viltu kannski að ég taki hann með mér í frí?"


Athugasemdir
banner
banner