Víkingur R. 2 - 5 Þróttur R.
0-1 Sierra Marie Lelii ('14 , Mark úr víti)
1-1 Freyja Stefánsdóttir ('53 )
1-2 Kristrún Rut Antonsdóttir ('58 )
1-3 Brynja Rán Knudsen ('70 )
2-3 Birta Birgisdóttir ('73 )
2-4 Sierra Marie Lelii ('77 )
2-5 Caroline Murray ('83 )
Víkingur fékk Þrótt í heimsókn í riðli tvö í A deild Lengjubikars kvenna í kvöld en þetta var erfiður róður fyrir heimakonur.
Þróttur var með forystuna í hálfleik en Freyja Stefánsdóttir jafnaði metin snemma í síðari hálfleik en Þróttur svaraði því með tveimur mörkum og leit varla til baka eftir það.
Víkingur er með sex stig í 3. sæti, þremur stigum á eftir toppliði Þór/KA en Víkingur er með mun slakari markatölu og á þarf því kraftaverk til að komast áfram.
Þetta var fyrsti sigur Þróttar í mótinu en liðið er í 5. sæti með fjögur stig.
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Valur | 5 | 5 | 0 | 0 | 19 - 3 | +16 | 15 |
2. Breiðablik | 5 | 4 | 0 | 1 | 14 - 5 | +9 | 12 |
3. Tindastóll | 5 | 2 | 1 | 2 | 9 - 8 | +1 | 7 |
4. Fylkir | 5 | 2 | 1 | 2 | 13 - 16 | -3 | 7 |
5. Keflavík | 5 | 1 | 0 | 4 | 5 - 13 | -8 | 3 |
6. Selfoss | 5 | 0 | 0 | 5 | 3 - 18 | -15 | 0 |