Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 08. mars 2024 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stórkostleg tölfræði Darwin Nunez á tímabilinu
Darwin Nunez.
Darwin Nunez.
Mynd: EPA
Sóknarmaðurinn Darwin Nunez mun koma sjóðandi heitur inn í stórleikinn gegn Manchester City á sunnudag.

Úrúgvæski framherjinn skoraði tvö glæsileg mörk í 1-5 sigri gegn Sparta Prag í gær sem svo gott sem tryggir Liverpool áfram í 8-liða úrslit Evrópudeildarinnar.

Hann skoraði þá sigurmarkið gegn Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.

Nunez er búinn að eiga virkilega gott tímabil með Liverpool en hann hefur núna komið að 26 mörkum á tímabilinu; hann er búinn að skora 15 mörk og hefur lagt upp ellefu.

Hann er að koma að marki á 85 mínútna fresti sem verður að teljast virkilega gott.


Athugasemdir
banner
banner