Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fös 08. mars 2024 09:55
Elvar Geir Magnússon
Trippier ekki með gegn Chelsea og Man City
Kieran Trippier.
Kieran Trippier.
Mynd: EPA
Kieran Trippier bakvörður Newcastle verður ekki með í næstu tveimur leikjum vegna meiðsla. Frá þessu greindi Eddie Howe stjóri Newcastle á fréttamannafundi í morgun.

Newcastle, sem er í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar, heimsækir Chelsea á Stamford Bridge á mánudagskvöld. Laugardaginn 16. mars mun liðið svo leika gegn Manchester City í 8-liða úrslitum FA-bikarsins.

Samkvæmt orðum Howe missir Trippier af báðum leikjum en þessi reynslumikli leikmaður var tekinn af velli í sigrinum gegn Wolves um síðustu helgi vegna kálfavandamála.

„Þetta eru minniháttar meiðsli en nóg til að halda honum frá næstu tveimur leikjum. Við vonumst til að hann verði klár í fyrsta leik eftir landsleikjagluggann en það er ekki pottþétt," segir Howe.

Hinn 21 ára gamli Tino Livramento, sem kom frá Southampton síðasta sumar, mun væntanlega fylla skarð Trippier.

„Hann hefur byrjað feril sinn hjá Newcastle frábærlega og staðið sig vel. Hann lenti í erfiðum meiðslum og það þurfti að fara varlega með hann. Hann hefur reynst okkur mjög vel eftir því sem liðið hefur á tímabilið og á bjarta framtíð," segir Howe.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner