Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 08. mars 2024 20:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Walker staðráðinn í að næla í sinn fyrsta sigur á Anfield
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Kyle Walker leikmaður Manchester City er staðráðinn í að vinna sinn fyrsta sigur á Anfield um helgina.


City heimsækir Liverpool á sunnudaginn og með sigri fer liðið á toppinn, upp fyrir Liverpool.

Walker var gestur í hlaðvarpsþættinum FIVE hjá Rio Ferdinand þar sem hann talaði um leikinn en þar minntist hann á markalaust jafntefli liðanna árið 2018.

„Ég hef aldrei unnið þarna, aldrei. Aldrei unnið með neinu liði. Maherz hefði getað breytt því en hann skaut hátt yfir úr víti. Þeir hafa verið með góða leikmenn og stuðningsmennirnir eru stórkostlegir," sagði Walker.


Athugasemdir
banner
banner