Arsenal getur komist á toppinn í bili að minnsta kosti með sigri á Brentford í kvöld.
Mikel Arteta gerir tvær breytingar á liðinu sem valtaði yfir Sheffield United í síðustu umferð. David Raya lánsmaður frá Brentford má ekki spila leikinn og því fær Aaron Ramsdale tækifæri í markinu.
Þá er Leandro Trossard á kantinum á kostnað Gabriel Martinelli sem er ekki í leikmannahópnum.
Sergio Reguilon er ekki í leikmannahópi Brentford en Keane Lewis-Potter kemur inn í liðið í hans stað.
Arsenal: Ramsdale, White, Saliba, Gabriel, Kiwior, Rice, Jorginho, Odegaard, Saka, Trossard, Havertz.
Brentford: Flekken, Roerslev, Zanka, Ajer, Collins, Lewis-Potter, Norgaard, Onyeka, Janelt, Wissa, Toney.
Athugasemdir