Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 09. mars 2024 16:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikar kvenna: Þór/KA í undanúrslit eftir sigur í Skessunni
Sandra María Jessen tryggði Þór/KA sigur
Sandra María Jessen tryggði Þór/KA sigur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH 1-2 Þór/KA
0-1 Margrét Árnadóttir ('30 )
1-1 Breukelen Lachelle Woodard ('70 )
1-2 Sandra María Jessen ('79 )


FH fékk Þór/KA í heimsókn í Skessuna í dag en gestirnir höfðu unnið alla þrjá leiki sína til þessa og gátu tryggt sér sæti í undanúrslitum Lengjubikarsins með sigri.

Margrét Árnadóttir kom Þór/KA yfir eftir hálftíma leik þegar hún fékk langa sendingu inn á vítateiginn og skoraði af miklu öryggi.

Breukelen Lachelle Woodard jafnaði metin þegar hún tók glæsilegan sprett í átt að vítateig Þór/KA og eftir gott samspil við samherja sína kláraði hún færið vel.

Það var síðan Sandra María Jessen sem tryggði Þór/KA sigur og farseðilinn í undanúrslitin.


Lengjubikar kvenna - A-deild, riðill 2
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Þór/KA 5 4 0 1 22 - 6 +16 12
2.    Stjarnan 5 3 1 1 9 - 6 +3 10
3.    FH 5 3 0 2 15 - 9 +6 9
4.    Þróttur R. 5 2 1 2 15 - 14 +1 7
5.    Víkingur R. 5 2 0 3 10 - 17 -7 6
6.    ÍBV 5 0 0 5 4 - 23 -19 0
Athugasemdir
banner
banner
banner