Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 09. mars 2024 14:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Man Utd stefnir á Meistaradeildina - „Hver einasti leikur er úrslitaleikur"
Mynd: EPA

Alejandro Garnacho var maður leiksins þegar Man Utd vann 2-0 sigur á Everton á Old Trafford.


Bæði mörkin komu af vítapunktinum en brotið var á Garnacho í báðum tilvikum.

„Við viljum vera í Meistaradeildinni á næstu leiktíð svo ég er ánægður með sigurinn. Stjórinn segir að hver einasti leikur sé úrslitaleikur. Við verðum að vinna hvern einasta leik, við erum Manchester United," sagði Garnacho við TNT eftir leikinn.

„Stjórinn vill að ég fari maður á mann og taki skot og rekja boltann. Ég vann tvær vítaspyrnur, það er mikilvægt. Það er draumur fyrir mig á mínum aldri, fullur Old Trafford að syngja nafnið mitt, ótrúlegt. Ég er svo stoltur og ánægður."


Athugasemdir
banner
banner