Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   lau 09. mars 2024 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spence ætlar að sanna sig fyrir Postecoglou
Mynd: EPA

Djed Spence varnarmaður Tottenham er staðráðinn í því að sanna sig fyrir Ange Postecoglou stjóra liðsins.


Hann hefur átt erfitt uppdráttar á þessu tímabili en hann fór á lán til Leeds fyrr á tímabilinu en snéri aftur til Tottenham í janúar eftir að hafa fengið fá tækifæri í Championship deildinni.

Hann var sendur á lán til Genoa í janúar og hefur verið inn og út úr liðinu. Hann ræddi um framtíð sína hjá Tottenham í samtali við The Atheltic.

„Ég vil spila fyrir Tottenham. Ég vil vera stór partur í áformum félagsins en við verðum að sjá til hvernig þetta fer, ég mun spjalla við stjórann og alla aðra," sagði Spence.

„Það er mikil breyting með nýjum stjóra, ég var á undirbúningstímabilinu með honum, hann er góður maður, hann er með góðar æfingar, hann vill spila fótbolta. Þetta er nýtt umhverfi hjá félaginu. Allir eru að njóta sín og gera vel, ég er ánægður fyrir þeirra hönd."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner