Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 09. maí 2022 11:45
Elvar Geir Magnússon
Stuðningsmenn Barcelona vonast til þess að Leeds falli
Mynd: Getty Images
Mundo Deportivo segir að stuðningsmenn Barcelona vonist til þess að Leeds United falli úr ensku úrvalsdeildinni því það myndi þýða að félagið fengi Raphinha á lægra verði.

Það er ekkert riftunarákvæði í samningi brasilíska sóknarleikmannsins á Elland Road en talið er að hann sé fáanlegur fyrirum 21 milljón punda ef Leeds fellur.

Raphinha er einn mest spennandi leikmaður Leeds en hann hefur skorað sextán mörk og átt tólf stoðsendingar fyrir liðið.

Þá hefur hann unnið sér sæti í brasilíska landsliðinu, spilað sjö landsleiki og skorað þrjú mörk.

Talsverð umræða hefur verið síðustu mánuði um áhuga Barcelona á leikmanninum.
Athugasemdir
banner
banner
banner