Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 11. mars 2021 14:30
Elvar Geir Magnússon
Elías Már skapar sér flest færi í hollensku B-deildinni
Mynd: Getty Images
Elías Már Ómarsson er sá leikmaður sem er efstur í xG tölfræðiþættinum úr opnum leik í hollensku B-deildinni á þessu tímabili.

Það þýðir að hann er sá leikmaður í deildinni sem er duglegastur við að koma sér í góð marktækifæri.

Elías spilar fyrir Excelsior og er næst markahæstur í deildinni, hann hefur skorað 18 mörk.

Hann er þó að ganga í gegnum smá markaþurrð um þessar mundir og er án marks í síðustu sex deildarleikjum með Excelsior en liðið er í tíunda sæti af 20 liðum.


Athugasemdir
banner
banner
banner